Vanessa Diffenbaugh (f. 1978) er fædd og uppalin í Kaliforníu. Hún lærði skapandi skrif við Stanford háskóla í heimafylki sínu. Táknmál blómanna er þekktasta verk hennar, skáldsagan kom fyrst út á ensku árið 2011. Táknmál blómanna sat á metsölulista New York Times í 69 vikur og hefur verið þýdd á 42 tungumál, m. a. íslensku. Diffenbaugh er fósturforeldri og berst fyrir velferð barna í fósturkerfi bandaríkjanna.