Hvað ef leyndarmál frá seinni heimsstyrjöldinni gæti enn í dag valdið alþjóðlegu stórslysi?
Harry Masterson, leyniþjónustumaður, finnst látinn við rætur grísks fjalls. Tweed, breskur leyniþjónustumaður, ákveður að komast að því hver stendur á bakvið morðið. Rannsóknin leiðir Tweed og samstarfs menn hans Paulu Grey og Bob Newman, að gömlu morðmáli sem átti sér stað um 40 árum áður, í seinni heimsstyrjöldinni. Þá tóku breskir hermenn þátt í árás á grísku eyjuna Siros. Þrír þeirra sem tóku þátt í árasinni búa nú nálægt hver öðrum í Englandi, og þeir virðast vera dauðhræddir. En hvað eru þeir hræddir við? Tweed og teymi hans fara að púsla saman vísbendingum. Þau komast að því að málið snýst ekki bara um hefnd eða gamalt morð, heldur stórt samsæri sem gæti haft áhrif á alþjóðlegt jafnvægi og frið milli austurs og vesturs. . .
Ef þér finnst gaman að púsla saman vísbendingum, leysa ráðgátur og reyna að komast að sannleikanum á undan persónunum, þá er serían um Tweed & Co gerð fyrir þig.