H. C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Í "Vatnsdropanum" bregður hann upp snaggaralegri samfélagsádeilu, þar sem hann speglar samtíma sinn á spaugilegan máta. Vísindamennirnir í sögunni skyggnast undir yfirborð vatnsins, og finna þar samfélag sem heimfæra má á það sem höfundurinn sprettur úr. Þetta er raunar eitt af einkennum skáldskapar Andersens, þar sem oftar en ekki er að finna táknsögur, sem sækja merkingu sína í víðara samhengi. Ádeilan í "Vatnsdropanum" er sett fram af snilli, og vera má að hún eigi við enn þann dag í dag.