H. C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Í "Flibbanum" eiga sér stað töfrar, eins og svo oft í sögum Andersens, og dauðir hlutir öðlast líf og mennsk persónueinkenni. Oftar en ekki má draga lærdóm af þessum sögum, og endurspegla hlutirnir gjarnan kosti og galla mannfólksins. Úr verður skemmtilega kaldhæðin táknsaga, með bísna nútímalegan boðskap í anda samþykkis og sannsögli.