H. C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Mörg af ævintýrum Andersens fjalla um barnadauða, enda var það ekki óalgengt böl fjölskyldna á hans tíð. Hér notar hann þetta sársaukafulla minni til þess að draga upp litla dæmisögu um það, hvernig nauðsynlegt er að halda áfram með lífið þrátt fyrir sársaukann. Þeim sem gefa sig sorginni á vald eru allar bjargir bannaðar.